Fara á efnissvæði

Helstu atriði í afkomu fjórða ársfjórðungs

  • Viðunandi niðurstaða fyrir fjórða ársfjórðung í ljósi krefjandi alþjóðlegra markaðsaðstæðna.
  • Tekjur námu 201,5 milljónum evra og lækkuðu um 54,2 milljónir evra eða 21,2% samanborið við fjórða ársfjórðung 2022.
  • Rekstrarkostnaður nam 178,8 milljónum evra og lækkaði um 38,5 milljónir evra eða 17,7% frá fyrra ári.
    • Launakostnaður jókst um 1,6 milljónir evra milli ára sem jafngildir 4,4% hækkun vegna almennra launahækkana. Gengisbreytingar gjaldmiðla hafa jákvæð áhrif á samanburðinn sem nemur 1,1 milljón evra.
  • EBITDA rekstrarhagnaður fjórðungsins nam 22,7 milljónum evra samanborið við 38,4 milljónir evra árið 2022. EBITDA hlutfall var 11,3% samanborið við 15,0% á sama fjórðungi fyrra árs.
  • Hagnaður eftir skatta nam 8,4 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 21,8 milljón evra á sama tímabili fyrra árs.
  • Áætlanasiglingar skiluðu ásættanlegri afkomu sé tekið tillit til hefðbundinnar árstíðarsveiflu þrátt fyrir að niðurstöðurnar litist af verulegri lækkun flutningsverða í Trans-Atlantic þjónustunni samanborið við fyrra ár þegar alþjóðleg flutningsverð voru mjög há.
  • Góð afkoma af alþjóðlegri flutningsmiðlun byggist á sterku magni og góðri framlegð þrátt fyrir töluverða lækkun á tekjum og rekstrarkostnaði vegna breyttra markaðsaðstæðna.

Helstu atriði í afkomu ársins 2023

  • Góð rekstrarniðurstaða á fjárhagsárinu 2023 þrátt fyrir snarpan viðsnúning markaðsaðstæðna frá fyrra ári.
  • Tekjur námu 827,5 milljónum evra og lækkuðu um 243,1 milljón eða 22,7% samanborið við árið 2022.
  • Rekstrarkostnaður nam 704,2 milljónum evra og lækkaði um 203,4 milljónir evra, einkum vegna lægri kostnaðar við aðkeypta flutningsþjónustu og lægra olíuverðs.
  • EBITDA rekstrarhagnaður nam 123,4 milljónum samanborið við 163,1 milljón á metárinu 2022.
  • EBIT rekstrarhagnaður nam 61 milljón evra samanborið við 101,5 milljón 2022.
  • Hlutdeildarfélagið ElbFeeder heldur áfram að skila góðri afkomu sem byggir á hagfelldum skipaleigusamningum og nam hlutdeild Eimskips í hagnaði ársins 13,4 milljónum evra.
  • Hagnaður eftir skatta nam 54,5 milljónum evra samanborið við 85,3 milljónir evra árið 2022.
  • Viðhaldsfjárfesting ársins 2023 nam 25,4 milljónum evra sem er í samræmi við kynnta áætlun upp á 26-29 milljónir evra, en árið 2022 nam viðhaldsfjárfesting 24,2 milljónum evra.
  • Nýfjárfesting nam 17,8 milljónum evra árið 2023 samanborið við 9,7 milljónir evra árið 2022. Stærsta einstaka verkefnið á árinu 2023 var bygging á nýju vöruhúsi, frystigeymslu og höfuðstöðvum í Færeyjum. Framkvæmdin hófst árið 2022 og verður lokið á árinu 2024. Næststærsta fjárfesting ársins var sjálfvirkt gámahlið í Sundahöfn, en það verkefni hófst árið 2022 og lauk á fjórða ársfjórðungi 2023.
  • Gott sjóðstreymi frá rekstri og lausafjárstaða nam 32,5 milljónum evra í árslok.
  • Skuldsetningarhlutfall nam 1.43x í árslok samanborið við 1,01x í lok 2022 en langtímamarkmið gerir ráð fyrir 2-3x. Eiginfjárhlutfall er 50,4% í árslok samanborið við langtímamarkmið um 40%.
  • Stjórn félagsins mun leggja til við aðalfund, sem haldinn verður 7. mars 2024, að greiddur verði út arður sem nemur u.þ.b. 25 milljónum evra fyrir fjárhagsárið 2023, sem er ígildi 46% af hagnaði eftir skatt.
  • Gámasiglingar skiluðu góðri afkomu þrátt fyrir að markaðsaðstæður í Trans-Atlantic hafi breyst verulega og valdið mikilli lækkun flutningsverða frá fyrra ári þegar alþjóðleg verð voru mjög há.
    • Magn í gámasiglingum minnkaði lítillega milli ára, einkum vegna minna magns í Trans-Atlantic flutningum á sama tíma og magn á öðrum flutningsleiðum breyttist lítið.
    • Innflutningsmagn til Íslands hélst sterkt út árið þökk sé umsvifum í hagkerfinu og ríkri áherslu á hátt þjónustustig.
    • Útflutningsmagn frá Íslandi var svipað frá fyrra ári, þrátt fyrir að það hafi verið undir væntingum vegna minni framleiðslu á eldislaxi og iðnaðarvöru en gert hafði verið ráð fyrir.
    • Góð afkoma í Færeyjum samhliða sterku útflutningsmagni sem vó upp á móti minnkandi innflutningi vegna minni umsvifa innanlands.
    • Í byrjun árs sáust fyrstu merki um lækkun í Trans-Atlantic flutningsverðum og á öðrum og þriðja ársfjórðungi lækkuðu verðin mjög skarpt áður en þau náðu jafnvægi á síðasta ársfjórðungi 2023.
    • Tekjur í Trans-Atlantic eru stærsta einstaka ástæða lækkunar í EBITDA rekstrarhagnaði á milli ára.
  • Frystiflutningskerfið í Noregi skilaði lægri afkomu en árið 2022, einkum vegna minni bolfiskkvóta og lægri meðalflutningsverða, samhliða veikingu norsku krónunnar gagnvart evru frá fyrra ári.
  • Heilt yfir gott ár í alþjóðlegri flutningsmiðlun sem skilaði góðri afkomu þrátt fyrir verulegar breytingar í markaðsaðstæðum frá fyrra ári.
  • Strategískar breytingar á siglingakerfinu voru innleiddar í maí, samhliða undirbúningi fyrir umfangsmeiri breytingu sem verður innleidd í lok febrúar 2024.
    • Markmið breytinganna er að auka áreiðanleika, lækka kostnað og draga úr útblæstri.
    • Viðbragð við nýjum umhverfisreglugerðum, tekjulækkun vegna markaðsaðstæðna og auknum kröfum viðskiptavina um umhverfisvænni flutninga.

VILHELM MÁR ÞORSTEINSSON, FORSTJÓRI

"Við erum ánægð með afkomu ársins 2023 en aftur á móti voru niðurstöður fjórða ársfjórðungs undir okkar væntingum, sérstaklega ef litið er til áætlanasiglinga. Magn í áætlanasiglingum hélt ágætlega velli í fjórðungnum og lækkaði einungis um 2%, en helsta ástæða lægri afkomu var sú gjörbreyting í Trans-Atlantic flutningsverðum sem átti sér stað á árinu 2023. Það er mikilvægt að rifja upp að á árunum 2021 og 2022 hækkuðu alþjóðleg flutningsverð gríðarlega vegna þeirra truflana sem heimsfaraldurinn olli á aðfangakeðjum heimsins en verð á flestum leiðum hófu að lækka hratt um mitt ár 2022. Í tilfelli Trans-Atlantic byrjuðu verðin hins vegar ekki að lækka fyrr en í byrjun árs 2023 og í lok þriðja ársfjórðungs voru þau komin á svipaðan stað og fyrir heimsfaraldurinn. Óumflýjanlega hafði þetta mikil áhrif á afkomu áætlanasiglinga samanborið við metárið 2022, þar sem stór hluti af rekstrarkostnaði siglingakerfisins fylgir ekki tekjum heldur byggist á þeim eignum og innviðum sem standa undir siglingakerfinu.

Þegar við sáum fyrstu merki um lækkun flutningsverða í upphafi ársins 2023, hófumst við handa við að teikna upp breytingar á siglingakerfinu. Markmið breytinganna voru skýr frá byrjun: að lækka kostnað, minnka eldsneytisnotkun og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda ásamt því að tryggja áreiðanlega og góða þjónustu. Að breyta kerfi af þessari stærðargráðu og flækjustigi er ekki einfalt verk en við innleiddum fyrsta fasa breytinganna í maí 2023 og nutum ávinningsins hluta úr árinu. Seinni fasi breytinganna var kynntur í lok nóvember og verður innleiddur í lok febrúar á þessu ári. Það var ekki einungis tekjusamdráttur vegna breyttra markaðsaðstæðna sem hvatti okkur af stað í þetta verkefni, heldur erum við jafnframt að bregðast við nýjum umhverfisreglugerðum svo sem CII reglugerð Alþjóða Siglingamálastofnunarinnar og inngildingu skipaflutninga í ETS kerfi Evrópusambandsins. Við finnum jafnframt fyrir sívaxandi eftirspurn frá viðskiptavinum eftir umhverfisvænni flutningum en skipaflutningar eru nú þegar einn hagkvæmasti flutningsmáti sem völ er á þegar kemur að kolefnislosun. Þessar áherslur ríma vel við metnaðarfullt markmið okkar um að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2040.

Heilt yfir gekk vel í alþjóðlegri flutningsmiðlun félagsins á árinu, en við höfum verið á skýrt markaðri vegferð með þennan hluta rekstursins frá árinu 2019. Hún hefur meðal annars falið í sér hagræðingu og samþættingu ásamt því sem nútímalegar hugbúnaðarlausnir hafa verið innleiddar til þess að styðja við sölu og rekstur. Ávinningur þessara breytinga er að koma skýrar í ljós nú þegar við erum komin út úr þeim óvenjulegu aðstæðum sem einkenndu árin 2021 og 2022. Rekstrarniðurstaða ársins 2023 er sönnun þess að flutningsmiðlunin okkar getur skilað heilbrigðri afkomu í krefjandi markaðsaðstæðum, sem byggir ekki síst á sérstöðu okkar í sérhæfðri frystiflutningsmiðlun.

Litið fram á veginn erum við almennt bjartsýn fyrir komandi vikum og mánuðum. Þegar kemur að heimamarkaðnum okkar byrjaði árið 2024 í takt við væntingar með auknum útflutningi frá Íslandi og stöðugu innflutningsmagni. Í Færeyjum eru horfur nokkuð stöðugar þar sem útflutningsmagn hefur verið gott en það dró úr innflutningi um mitt síðasta ár og hefur magnið haldist á svipuðu róli síðan. Í Noregi undirbúum við okkur fyrir að ný vertíð nái hápunkti og þótt þorskkvóti sé töluvert undir síðasta ári mun vertíðin samt sem áður hafa góð áhrif í fyrsta ársfjórðungi.

Alþjóðlegi flutningageirinn er gríðarlega dýnamískur og um miðjan desember hófst enn og aftur tímabil mikilla verðsveiflna þegar Suez skurðurinn lokaðist nánast fyrir almennri umferð vegna árása herskárra hópa á flutningaskip. Þessi alvarlega staða hefur aukið hringferðartíma flutningaskipa og gáma milli Asíu og Evrópu sem hefur leitt til skarpra hækkana á flutningsleiðum tengdum Asíu. Nýlega hafa áhrif þessara atburða byrjað að koma fram í hækkunum á verðum á ótengdum flutningaleiðum, til dæmis Trans-Atlantic, enda hefur þessi staða raskað jafnvægi í flutningakeðjum og dregið umtalsvert úr afkastagetu í flutningskerfi heimsins. Hvernig þessir alvarlegu atburðir þróast getur haft áhrif á horfur fram undan fyrir alþjóðlega hluta starfsemi okkar en heilt yfir erum við nokkuð bjartsýn.

Að lokum vil ég þakka okkar metnaðarfulla starfsfólki um allan heim sem sýnir seiglu og útsjónarsemi alla daga með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu í síbreytilegu umhverfi."

KYNNINGARFUNDUR 14. FEBRÚAR 2024

Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti ársreikning samstæðu Eimskips fyrir árið 2023 á stjórnarfundi þann 13. febrúar 2024. Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 14. febrúar kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð. Fundurinn verður einnig rafrænn og verður honum streymt beint á fjárfestasíðu Eimskips www.eimskip.com/investors.

Þar munu Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri og María Björk Einarsdóttir fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins fyrir fjórða ársfjórðung og fjárhagsárið 2023. Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður einnig hægt að nálgast á fjárfestasíðunni.

FREKARI UPPLÝSINGAR

María Björk Einarsdóttir, fjármálastjóri , sími: 774 0604, netfang: investors@eimskip.com.
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com

TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA

Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.