Störf hjá Eimskip
Allir sem hafa áhuga á að vera hluti af sterkri liðsheild Eimskips eru hvattir til þess að sækja um.
Meðhöndlun umsókna
Allar umsóknir um störf hjá Eimskip eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Almennum umsóknum er ekki svarað sérstaklega en ef reynsla og hæfni umsækjanda nýtist mögulega í lausu starfi er haft samband við viðkomandi.
Umsóknir um auglýst störf eru yfirfarnar þegar umsóknarfrestur er liðinn. Að því loknu er haft samband við þann hóp umsækjenda sem kemur helst til greina í stöðuna og óskað eftir viðtali. Þegar um er að ræða auglýst störf, þá er öllum umsóknum svarað þegar ráðningu í stöðuna er lokið.
Allar umsóknir eru geymdar í 6 mánuði, eftir þann tíma er þeim eytt. Ef ekki hefur komið til ráðningar innan þess tíma og enn er óskað eftir starfi, þarf að sækja um á ný. Ef umsækjandi kýs að umsókn verði eytt innan þess tíma þá vinsamlega sendið tölvupóst á starf@eimskip.is.
Vönduð umsókn
Mikilvægt er að vanda til verka þegar umsókn er fyllt út þar sem upplýsingar úr umsókn eru notaðar til að bera saman hæfni og menntun umsækjenda við kröfur í laus störf. Vinsamlega athugið að hægt er að senda ferilskrá og kynningarbréf í viðhengi með umsókn. Vel útfyllt umsókn eykur möguleika umsækjenda á starfi.
Ef af ráðningu verður er mjög mikilvægt að öll útskriftarskírteini eða menntunargögn, sem staðfesta menntun umsækjanda, verði skilað til Eimskips. Gögnin geta verið forsenda ráðningar í ákveðnar stöður þar sem menntunar er krafist.
Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.
Meðhöndlun og varðveisla persónuupplýsinga
Eimskip hefur einsett sér að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi persónuupplýsinga umsækjenda um störf hjá félaginu og uppfylla í hvívetna persónuverndarstefnu félagsins sem byggð er á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd.