Félagið heitir Eimskipafélag Íslands, en kallast í daglegu tali Eimskip.
Fallbeyging nafnsins er:
Nefnifall | Eimskip |
Þolfall | Eimskip |
Þágufall | Eimskip |
Eignarfall | Eimskips |
Grunneining merkisins er bókstafurinn E sem vísar í heiti fyrirtækisins. Í merkinu eru tvö E sem tengjast saman og mynda tákn fyrir gagnvirk tengsl; viðskiptatengsl þar sem þjónusta fyrirtækisins og þarfir viðskiptavina falla þétt saman.
Blái liturinn stendur fyrir Ísland og grundvallartengingu við hafið, á meðan grái/silfraði liturinn stendur fyrir verðmæti, þ.e. verðmætasköpun Eimskips og viðskiptavina þess.
Hér má finna skjal um grunnreglur fyrir meðferð á letri, litum og merki Eimskips og myndir úr starfseminni.
Merkja- og myndabanki
Hér má finna merki og nokkrar myndir úr starfsemi Eimskips. Öll notkun á merki félagsins skal gerð í samráði við mannauðs- og samskiptasvið.