Eimskip hefur undanfarnar vikur unnið að innleiðingu breytinga á gámasiglingakerfi sínu en markmið breytinganna er meðal annars að koma nýjum gámaskipum félagsins, Dettifossi og Brúarfossi, að fullu inn í siglingakerfið.
Jól og áramót eru nú á næsta leiti og má vænta nokkurra frávika í siglingaáætlun okkar yfir hátíðirnar. Við hvetjum viðskiptavini okkar til að kynna sér siglingaáætlun hverrar viku fyrir sig og hafa samband við sína tengiliði hjá Eimskip ef einhverjar spurningar vakna.
Hér má finna siglingaáætlun Eimskips yfir hátíðirnar viku fyrir viku.
Nánar má svo lesa um breytingar á siglingakerfinu hér.