Nýr vefur Eimskips í loftið
Undanfarna mánuði hefur verið unnið að nýjum vef Eimskips þar sem markmiðið var að þróa einfaldan og þjónustuvænan vef þar sem þarfir viðskiptavina voru hafðar að leiðarljósi.
Viðskiptavinum hefur meðal annars verið boðið uppá að prófa vefinn og skila inn athugasemdum og hugmyndum sem margir hafa nýtt sér.
Helstu nýjungar eru meðal annars:
- Nýtt tilboðsform fyrir búslóða-, inn- og útflutning
- Mun öflugri leit sem sýnir tillögur að niðurstöðu
- Endurbætt skipasendingaleit
- Leit í siglingaáætlun gerð aðgengilegri
- Innskráning á þjónustuvef (ePort) frá forsíðu
- Einfaldara aðgengi að upplýsingum
Ef einhverjir sakna gamla vefsins þá verður hann aðgengilegur fyrst um sinn á gamli.eimskip.is. Allar ábendingar eru vel þegnar hér.