Fara á efnissvæði
Fréttatilkynning frá Eimskipafélagi Íslands hf.Í ljósi fréttaflutnings Ríkisútvarpsins þann 14. október 2014 vill félagið koma eftirfarandi á framfæri.Félagið tilkynnti þann 10. september 2013 að Samkeppniseftirlitið hefði hafið rannsókn á félaginu og kallað eftir gögnum. Félagið hefur ítrekað óskað eftir upplýsingum um hin meintu brot á samkeppnislögum og hefur af því tilefni kært ákvarðanir Samkeppniseftirlitsins í tvígang til Áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Þann 30. september sl. tilkynnti félagið að Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefði fellt úr gildi ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 3. júní sl. að hluta og lagt fyrir eftirlitið að afhenda félaginu umbeðin gögn innan tveggja vikna. Félaginu bárust gögnin þann 8. október sl. og vörpuðu þau ekki frekara ljósi á grundvöll málsins.Fram kom í umfjöllun RÚV að Samkeppniseftirlitið hafi kært forstjóra og ótilgreinda starfsmenn félagsins til Sérstaks saksóknara fyrir brot á 10. gr. samkeppnislaga.Í umfjöllun RÚV er vísað til kæru Samkeppniseftirlitsins til Sérstaks saksóknara. Félagið hefur kæruna ekki undir höndum og getur því hvorki upplýst um efni hennarné að hvaða einstaklingum hún beinist. Ljóst má vera af umfjöllun RÚV að fjölmiðillinn er með mun ítarlegri upplýsingar um rannsókn málsins en félagið sjálft. Félagið hafnar því með öllu að hafa gerst brotlegt við ákvæði samkeppnislaga.