Fara á efnissvæði
Brúarfossskip Eimskipafélagsins varð vélarvana u.þ.b. 7 sjómílur vestur af Sandgerði í slæmu veðriallt að 24 ms. Ástæðan var bilun í ásrafal skipsins.Áhöfnin náði að gangsetja aðalvélina kl. 0527. Togarinn Höfrungur III var kominn að skipinu og tilbúinn til aðstoðar um kl. 0515. Landhelgisgæslan var í viðbragðsstöðu ásamt sjóbjörgunarsveitum á Suðurnesjum og fylgdist náið með stöðunni í samstarfi við óhappanefnd Eimskips.Brúarfoss hélt áætlun sinni til Vestmannaeyja þar sem bilunin var skoðuð betur og viðgerð fór fram. Ekki er ljóst á þessari stundu hvaða áhrif þetta kann að hafa á áætlun skipsins. Um borð er 12 manna áhöfn og öllum líður vel.