Eimskip undirritar viljayfirlýsingu við Royal Arctic Line AS Eimskip og Royal Arctic Line AS hafa undirritað viljayfirlýsingu um að tengja Grænland við alþjóðlegt siglingakerfi Eimskips með samningi um samnýtingu á plássi í siglingakerfum sem tengir Grænland á heimsvísu. Gert er ráð fyrir að fyrirtækin vinni saman með samnýtingu á plássi í stærri skipum sem mun auka hagkvæmni og áreiðanleika.Félögin munu fjárfesta í og reka gámaskip sem verða hönnuð og smíðuð fyrir sérstakar veðuraðstæður á NorðurAtlantshafi og Norðurheimskautssvæðinuí samræmi við alþjóðlegar reglur um siglingar skipa um svæðið. Nýju skipin verða hönnuð með tilliti til betri eldsneytisnýtingar og verða því umhverfisvænni. Nýju skipunum verður ætlað að tengja flutningakerfi Grænlands og Íslands við SkandinavíuEvrópu og NorðurAmeríku.Endanlegt samkomulag um samstarf er háð samþykki stjórna fyrirtækjanna og viðeigandi yfirvalda.Gylfi Sigfússonforstjóri EimskipsFyrirhugaðar stækkanir á höfnunum í NuukReykjavík og Þórshöfn gefa færi á þjónustu stærri skipa á markaðssvæðinu. Sameining á flutningsmagni Eimskips og Royal Arctic Line og notkun á færri og stærri skipum leiðir til aukinnar hagkvæmni.Samstarfið er mikilvægt skref í að endurnýja og byggja upp skipaflota Eimskips og það eykur umsvif félagsins á NorðurAtlantshafi. Samstarfið mun einnig án nokkurs vafa leiða af sér aukin viðskipti milli landanna hér á okkar heimamarkaði.Verner Hammekenforstjóri Royal Arctic LineSamkomulagið er mikilvægt skref í að tengja Grænland við alþjóðlega markaði. Það skapar tækifæri fyrir útflytjendurgefur færi á frekari vinnslu afurða á Grænlandi áður en þær eru fluttar beint til áfangastaða um allan heim með hagkvæmari hætti. Einnig felur þetta í sér mikilvæg tækifæri fyrir innflytjendur til að flytja vörur beint frá nýjum markaðssvæðum í stað þess að þurfa að fara í gegnum Danmörku. Við sjáum nú aukin tækifæri og hagkvæmni til framtíðar og auðveldari flutninga sem mun auðvelda viðskipti við Grænland.Um Royal Arctic LineRoyal Arctic Line AS var stofnað árið 1993 og er að fullu í eigu grænlensku landssjórnarinnar. Landsstjórnin hefur veitt Royal Arctic Line AS sérleyfi til að annast vöruflutninga á sjó til og frá Grænlandi ásamt flutningum á landi. Þetta hefur gert félagið að fjöreggi grænlensks samfélags. Royal Arctic Line annast einnig rekstur 13 hafna á Grænlandi.Um EimskipEimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur 57 starfsstöðvar í 19 löndumer með 20 skip í rekstri og hefur á að skipa um 1.580 starfsmönnum. Um helmingur tekna Eimskips kemur frá starfsemi utan Íslands. Stefna félagsins er að veita framúrskarandi flutningaþjónustu á NorðurAtlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun.Eimskip hefur verið umboðsaðili Royal Arctic Line á Íslandi frá árinu 1993. Samstarfið hefur nýlega verið aukið með því að TVGZimsendótturfélagi Eimskipshefur verið falið að annast flutningsmiðlun á flugi og akstri fyrir Royal Arctic Line í Evrópu.Á myndinni eruGylfi Sigfússon og Verner Hammeken