Eimskip kynnir umfangsmiklar breytingar á siglingakerfi félagsinsVikulegar strandsiglingar með beinni tengingu við Bretland og meginland Evrópu og styttri siglingatími til og frá BandaríkjunumVikulegar strandsiglingar með beinni tengingu við Bretland og meginland EvrópuAukin ferðatíðni og styttri siglingatími til og frá BandaríkjunumÞjónusta tvisvar í viku fyrir ferskan fisk frá Íslandi og FæreyjumAukin þjónusta við olíuiðnaðinn með siglingum til og frá SkotlandiNý þjónusta fyrir uppsjávarfisk með beinum siglingum inná EystrasaltEimskip hefur verið með í undirbúningi breytingar á siglingakerfi félagsins sem miða að því að útvíkka kerfið á NorðurAtlantshafifjölga viðkomuhöfnum og bæta við einu gámaskipi í flotann. Breytingar á viðkomuhöfnum í Bandaríkjunum gera það mögulegt að ráðast nú í frekari breytingar. Frá og með 26. mars 2013 mun Eimskip hefja viðkomur í PortlandMaine á austurströnd Bandaríkjanna í stað þess að sigla á Everett og Norfolk í Virginaen með þeirri ráðstöfun styttist hringferðartími skipanna. Þann 14. mars n.k. fer Brúarfoss frá Reykjavík í sína fyrstu strandsiglingu norður fyrir Ísland með tengingu við FæreyjarBretland og meginland Evrópu.Helstu breytingar á siglingakerfinu eru þessarNý vikuleg strandsiglingaleið sem tengir Ísland við FæreyjarBretland Skotland og meginland Evrópu. Skip félagsins munu koma vikulega við í Reykjavíká ÍsafirðiAkureyri og Reyðarfirðisömu höfnum og innanríkisráðuneytið fyrirhugar að bjóða út sem fastar viðkomuhafnir í útboði á strandsiglingum. Mögulegt er að koma við í fleiri höfnum ef þörf er á. Eimskip er með skrifstofu og hafnaraðstöðu á framangreindum stöðum svo félagið er vel í stakk búið til að sinna þessum breytingum á siglingakerfinu.Brúarfoss mun leggja af stað í sína fyrstu ferð samkvæmt vikulegri áætlun þann 14. mars frá Reykjavík. Breyting þessi gerir útflytjendum af landsbyggðinni kleift að flytja ferskan fisk beint á fimmtudagsmarkað í Bretlandi og Frakklandi og frosinn fisk til dreifingar á meginland Evrópu og víðar.Aukin ferðatíðni og styttri siglingartími til og frá Bandaríkjunumauk þess sem Ameríkuskip félagsins á leið vestur eiga þess kost að hafa viðkomu m.a. á Akureyri og Ísafirði á leið sinni frá Noregi. Með þessu skapast beinn aðgangur að hráefnisöflun í Noregi og Rússlandi fyrir fiskvinnslur á Íslandi.Ný þjónusta fyrir ferskan fisk frá Færeyjumþví með vikulegum siglingum á nýrri siglingaleið með viðkomu í Færeyjum á hverjum mánudegi gefst Færeyingum kostur á að flytja ferskan fisk í gámum til dreifingar á Bretlandseyjum á miðvikudegi. Auk viðkomu í Þórshöfn verður komið við í Vágur á Suðurey þar sem mikill vöxtur hefur verið í vinnslu á uppsjávarfiski.Þjónusta félagsins við vaxandi olíuiðnað á Norðurslóðum eflist með tengingu við Skotland sem er miðstöð olíuiðnaðarins í Bretlandi. Þannig skapast tækifæri og beinar tengingar fyrir norður og austurhluta Íslands við uppbyggingu Íslendinga á þjónustu við væntanlegan olíuiðnað á Drekasvæðinu og í grænlenskri lögsögu . Tengingin er jafnframt mikilvæg fyrir frekari uppbyggingu félagsins á þjónustu við olíuiðnaðinn í Færeyjum og á Nýfundnalandi. Eimskip býður þegar uppá vikulegar siglingar frá Aberdeen til Noregs með frystiskipum félagsins.Bein tenging inná Eystrasalt með viðkomu í Póllandi. Eimskip opnaði fyrr í mánuðinum skrifstofu í Gdynia í Póllandi sem lið í þessum breytingum.Gylfi SigfússonforstjóriÞað er mér sérstök ánægja að tilkynna þessar viðamiklu breytingar á siglingakerfi Eimskips sem verið hafa í undirbúningi í meira en ár. Forsenda þeirra er flutningur á hafnaraðstöðu félagsins frá Everett og Norfolk í Virginíu í Bandaríkjunum til PortlandMaine. Aukin umsvif félagsins á NorðurAtlantshafií BandaríkjunumNýfundnalandiFæreyjum og Noregi gera félaginu kleift að bjóða uppá strandsiglingaþjónustu á Íslandi. Með því að fjölga viðkomuhöfnum á Íslandi og í Færeyjum skapast ný tækifæri fyrir viðskiptavini Eimskips. Breytt siglingakerfi tengir frændþjóðirnar Ísland og Færeyjar beint við inn og útflutningsmarkaðidregur úr umferð á vegum ásamt því að lækka flutningskostnað viðskiptavina. Víðsvegar um landið er iðnaður í þróun og er nú fjölbreyttari en áður varauk þess sem fjölbreytni í sjávarútvegi hefur aukist.Það er von mín að þessar breytingar muni gera viðskiptavinum okkar á Íslandií NoregiFæreyjum og Nýfundnalandi auðveldara með að koma afurðum sínum á markað og kaupa hráefni með þægilegrihagkvæmari og markvissari hætti en áður.Frekari upplýsingarGylfi Sigfússonforstjórisími 525 7202Ólafur William Handupplýsingafulltrúisími 825 7221