Eimskip óskar Vestfirðingum hjartanlega til hamingju með bættar vegasamgöngur til norðanverðra Vestfjarða. Nýr og endurbættur vegur um Arnkötludal á milli Steingrímsfjarðar og Króksfjarðar verður formlega tekinn í notkun í dagmiðvikudaginn 14. október. Þessar vegabætur þýða að nú er loks hægt að aka á bundnu slitlagi alla leið á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar.Til að fagna þessum tímamótum í samgöngusögu Vestfjarða hefur Eimskip Flytjandi ákveðið að lækka verðskrá sína til svæðisins um 8 frá og með 1. nóvember næstkomandi og hvetur jafnframt samgönguráðherra til enn frekari vegabóta á Vestfjörðum.Nánari upplýsingar veitirGuðmundur Nikulásson framkvæmdastjóri innanlandssviðs Eimskipssími 825 7702Hafþór Halldórsson svæðisstjóri Eimskips Ísafjörðursími 825 7081