Fara á efnissvæði

Eimskip er á meðal 2,2% fyrirtækja á Íslandi sem uppfylla þau ströngu skilyrði sem sett eru í samantekt Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Við erum stolt af því að hafa verið á lista fyrirmyndarfyrirtækja í rekstri frá upphafi. Það er viðurkenning á þeim góða árangri sem félagið og starfsfólk þess hafa náð síðustu árin og hvatning um áframhaldandi gott og metnaðarfullt starf.

Fyrirtækin sem komast á listann þurfa að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárin 2020 og 2019 en rekstrarárið 2018 er einnig notað til viðmiðunar. Þau þurfa að hafa skilað jákvæðri afkomu árin 2020 og 2019 og tekjurnar þurfa að hafa verið yfir 30 milljónir króna hvort ár. Þá þurfa eignir fyrirtækjanna að hafa verið yfir 80 milljónir króna í lok áranna 2020 og 2019 og eiginfjárhlutfall yfir 20% í lok áranna.