Fara á efnissvæði

Á hverju ári gefur Creditinfo út lista yfir fyrirtæki sem þykja framúrskarandi út frá lykiltölum í rekstri. Greiningin hefur verið gerð árlega í 11 ár og þurfa fyrirtæki að uppfylla strangar kröfur til að vera flokkuð sem framúrskarandi.

Eimskip er eitt þeirra 842 fyrirtækja sem þykja framúrskarandi árið 2020 og erum við afskaplega stolt af þeim árangri. Það er ekki sjálfgefið að vera hluti af þessum 2% framúrskarandi fyrirtækja en að baki liggur mikil vinna starfsfólks sem hefur metnað til að standa sig vel.

Auk Eimskips eru dótturfélögin TVG-Zimsen og Gára einnig á listanum.