Breytingar á eignarhaldiLífeyrissjóður verzlunarmanna kaupir 14 hlut í EimskipLandsbanki Íslands og Yucaipa selja hvor um sig 7 hlutViðskiptin falla vel að áformum Eimskips um skráningu í kauphöllStærstu hluthafar EimskipsLandsbanki Íslands og bandaríska fjárfestingafélagið Yucaipahafa tilkynnt félaginu um viðskipti með bréf í Eimskip. Hvor aðili um sig hefur selt 14 milljónir bréfa til Lífeyrissjóðs verzlunarmannasem samtals kaupir því 28 milljónir bréfa eða 14 hlut í félaginu. Kaupverðið nemur samtals tæpum 57 milljörðum króna.Straumur fjárfestingabanki hafði milligöngu um viðskiptin sem fara fram í undanfara að mögulegri skráningu Eimskips í kauphöll. Viðskiptin falla vel að þeim áformum félagsins og með þeim breikkar hluthafahópur Eimskips. Eftir viðskiptin á Lífeyrissjóður verzlunarmanna samtals 146 hlut og er þriðji stærsti hluthafi Eimskips á eftir Yucaipa sem samtals á 253 hlut og Landsbanka Íslands sem á um 303 hlutafjár.Undirbúningur að mögulegri skráningu Eimskips á NASDAQ OMX Iceland gengur vel. Gert er ráð fyrir því að fram fari almennt hlutafjárútboð samhliða skráningu þar sem fjárfestum og almenningi gefst kostur á að eignast hlut í félaginu. Fyrirhugað er að skráning fari fram á síðasta ársfjórðungi þessa árs.Um Eimskipafélag Íslands hf.Eimskipafélag Íslands var stofnað þann 17. janúar 1914. Stofnhluthafar voru um 14 þúsund sem samsvaraði um 15 þjóðarinnar á þeim tíma. Eimskip býður upp á alhliða flutningsþjónustu um allan heim. Eimskip er með eigin starfsemi í 17 löndummeð 17 skip í rekstri og hefur á að skipa 1260 starfsmönnumþar af vinna um 730 starfsmenn á Íslandi. Stefna félagsins er að veita öfluga flutningaþjónustu á heimamarkaði á Norður Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka alþjóðlega frystiflutningsmiðlun um heim allan.