TEKJUVÖXTUR 29,7% Á FYRSTA ÁRSFJÓRÐUNGI 2017
EBITDA 9,3 milljónir evra, mikill innri vöxtur og góður árangur nýrra fyrirtækja en sjómannaverkfall hafði neikvæð áhrif
Tekjur námu 146,9 milljónum evra, hækkuðu um 33,7 milljónir evra eða 29,7% frá Q1 2016
Magn í áætlunarsiglingum jókst um 3,0% og tekjur hækkuðu um 8,9 milljónir evra eða 10,7%
Magn í flutningsmiðlun jókst um 28,9% og tekjur hækkuðu um 24,8 milljónir evra eða 82,6%, aðallega vegna nýrra félaga
EBITDA nam 9,3 milljónum evra, dróst saman um 0,3 milljónir evra eða 3,3% frá Q1 2016
Aðlöguð EBITDA nam 11,6 milljónum evra og jókst um 20,5% að teknu tilliti til verkfallsins á Íslandi (1,5 milljónir evra) og annarra einskiptisliða (0,8 milljónir evra)
Hagnaður nam 0,2 milljónum evra samanborið við 1,8 milljóna evra hagnað í Q1 2016
Eiginfjárhlutfall var 56,6% og nettóskuldir námu 50,4 milljónum evra í lok mars
Afkomuspá ársins 2017 er óbreytt, EBITDA á bilinu 57 til 63 milljónir evra