Afkoma jákvæð í kjölfar endurskipulagningar Mikill samdráttur í flutningum Eimskip einbeitir sér að flutningastarfsemi Eimskip fór í gegnum heildar endurskipulagningu á árinu 2009. Í tengslum við endurskipulagninguna tóku kröfuhafar og nýr fjárfestir yfir flutningastarfsemi félagsins þann 1.október 2009 og skipuðu nýja stjórn. Hluthafar félagsins eru nú 74 talsinsgamli Landsbankinn fer með 37 hlut og bandaríski fjárfestingasjóðurinn Yucaipa fer með 32 hlut en sjóðurinn kom að endurskipulagningu félagsins með því að fjárfesta í frystigeymslustarfseminni í Norður Ameríku og leggja inn nýtt hlutafé í endurskipulagt félag.Í dag er Eimskip með starfsemi í 16 löndum og hefur á að skipa 1.250 starfsmönnumþar af vinna um 730 starfsmenn á Íslandi. Stefna félagsins er að veita öfluga flutningaþjónustu á Norður Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka frystiflutningsmiðlun. Um helmingur af tekjum félagsins koma frá starfsemi utan Íslands.Afkoma ársins 2009Afkoma Eimskipafélags Íslands hf. eftir skatta er jákvæð um EUR 23 milljónir ISK 423 milljónir fyrir tímabilið frá 1 október 31. desember 2009. Rekstrarafkoma EBITDA var jákvæð um EUR 85 milljónir ISK 1.561 milljónir. Heildareignir félagsins eru EUR 279 milljónir ISK 50 milljarðar og var eiginfjárhlutfall félagsins 537 í lok árs 2009. Vaxtaberandi skuldir félagsins eru EUR 81 milljónir ISK 146 milljarðar.1. ársfjórðungur 2010Fyrsti ársfjórðungur ársins 2010 er í takt við áætlanir og er að skila jákvæðri afkomu fyrir skatta að fjárhæð EUR 19 milljónir ISK 329 milljónir og rekstrarafkoma EBITDA er jákvæð um EUR 77 milljónir ISK 14 milljarðar.Gylfi Sigfússon forstjóriÁ árinu 2009 fór Eimskip í gegnum miklar skipulags og hagræðingaraðgerðir sem eru að skila sér í jákvæðri rekstrarafkomu. Ytra umhverfi fyrirtækisins er hinsvegar erfitt og töluverður samdráttur hefur verið í flutningamagni á markaðssvæði félagsins á Norður Atlantshafi. Eimskip hefur unnið markvisst að því að móta stefnu félagsins á sviði flutningastarfsemi og er árangur þeirrar vinnu nú að líta dagsins ljós.Það er brýnt fyrir íslenskt atvinnulíf að hjólin fari að snúast í rétta átt og að við lítum fram á veginnþví er það mjög mikilvægt að fyrirtæki eins og Eimskip leiði uppbygginguna með jákvæðri afkomu. Þau fyrirtæki sem byggja á gömlum og traustum grunni þurfa að leita aftur í uppruna sinn og að byggja upp að nýju á réttum forsendum. Eimskip er eitt þeirra fyrirtækja sem fór mjög illa í offjárfestinguskuldsetninguómarkvissri stefnu og aðhaldsleysi. Flutningastarfsemi Eimskip byggir á gömlum og traustum stoðum og félagið hefur á að skipa góðu starfsfólki með áralanga reynslu sem auðveldar alla uppbyggingu til framtíðarnú þegar félagið nálgast 100 ára afmæli sitt.