Þann 1. maí 2018 hækkar gjaldskrá Eimskips Flytjanda í flutningum innanlands og innanbæjarakstri um 1,9%. Þessar gjaldskrárbreytingar eru gerðar í tengslum við hækkanir á helstu kostnaðarliðum félagsins. Frekari upplýsingar eru veittar hjá viðskiptaþjónustu Eimskips Flytjanda í síma 525-7700.