Ljósmyndasamkeppni Eimskips

ljósmyndasamkeppni Eimskipafélags Íslands 2011 fyrir dagatal félagsins 2012

Taktu þátt í ljósmyndakeppni Eimskips og freistaðu þess að fá myndina þína gefna út á næsta dagatali félagsins. Hver myndhöfundur getur sent inn eina stafræna ljósmynd fyrir hvern mánuð eða valið að senda inn mynd sjaldnar, jafnvel einu sinni.

Síðan er valin mynd mánaðarins að mati sérstakrar dómnefndar og hlýtur höfundur þeirrar myndar vegleg verðlaun frá Sense, umboðsaðila Canon á Íslandi. Sú mynd á jafnframt möguleika á að birtast á dagatali Eimskipafélags Íslands.

Skil á mynd

Á jpg-formi á vefsvæðið eimskip.is/ljosmyndasamkeppni.
Senda skal inn 1240x1240 px, en frummynd þarf að vera að lágmarki 3888 x 2592 px.
Hver myndahöfundur má aðeins skila inn einni mynd í hverjum mánuði. Skiladagur mánaðarmyndarinnar er í síðasta lagi 20. dag mánaðarins á eftir. Janúarmynd á þannig að skila inn í síðasta lagi 20. febrúar.

Myndefnið

Landslag í náttúru Íslands er myndefnið. Á myndinni, sem á að vera í lit, mega ekki sjást byggingamannvirki eða ummerki um þau. Ekki má vinna mynd að öðru leyti en því að stilla af og lagfæra tæknilega galla í framköllun (t.d. í Adobe Lightroom, Apple Aperture eða Adobe Photoshop/Elements). Myndina skal taka í þeim mánuði sem hún tilheyrir, þ.e. janúarmyndina skal taka í janúar. Myndir fyrir október, nóvember og desember skal senda inn fyrir 20. nóvember. Þær þrjár myndir má taka í hvaða mánuði sem er á árinu 2011.

 

- Smellið hér til að senda inn mynd -

Verðlaun

Einu sinni í mánuði velur dómnefnd mynd mánaðarins úr innsendum myndum. Verðlaunin eru frá Sense, umboðsaðila Canon á Íslandi. Í desember verða allar 12 myndirnar gerðar opinberar og aðalverðlaunin, Canon 60D, kynnt.

Verðlaun janúarmánaðar er Canon Ixus 1000 HS myndavél, búin 10x optical aðdrætti með Image Stabilizer HS-kerfi með 10,0 megapixla CMOS sensor. Fullkomin HD myndbandspptaka, 7,6 cm (3.0”) PureColor II G LCD, Super Slow Motion Movie og háhraðataka. Best Image Selection tekur fimm myndir í einni lotu og velur sjálfvirkt bestu myndina til að geyma. Smellið hér til að sjá mynd af vélinni.

 

Dómnefnd

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskipafélags Íslands Ólafur W. Hand, markaðsstjóri Eimskipafélags Íslands Arnaldur Halldórsson, ljósmyndari Halldór J. Garðarsson, vörustjóri Canon og Finnur Jóhannsson Malmquist, Fíton auglýsingastofa.

 

 

Svör við nokkrum algengum spurningum:

  1. Eimskip er með þessari keppni að gefa almenningi jafnt og atvinnumönnum tækifæri til að fá mynd sína birta í einu elsta prentverki landsins.
  2. Dagatal félagsins hefur verið gefið út óslitið síðan 1928, ef frá eru talin tvö ár og var ástæðan þá að styrjöld geisaði í Evrópu og erfitt um vik að verða sér út um pappír.
  3. Eimskipafélagið vill taka það skýrt fram að ALLAR þær myndir sem sendar eru inn eru og verða ALLTAF eign ljósmyndarans.
  4. Félagið mun aðeins nota þær myndir sem vinna til verðlauna í dagatal félagsins 2012, til þess að auglýsa sjálfa keppnina og til þátttöku í yfirlitssýningu keppninnar - allt án greiðslu til ljósmyndara.
  5. Eimskipafélagið mun aðeins nota þær myndir sem vinna til verðlauna til þess að auglýsa útkomu dagatals Eimskipafélagsins 2012 og þá án aukagreiðslu.
  6. Óski Eimskip eftir því að nota þær myndir sem sendar eru inn til þátttöku í öðrum tilgangi en að auglýsa keppnina sjálfa, á yfirlitssýningu vegna keppninar og útkomu dagatalsins mun félagið gera það í FULLU samráði við ljósmyndarann og þá gegn greiðslu sem semst um og verður stuðst við verðskrá Myndstefs í þeim efnum.
  7. Öllum er frjálst að taka þátt í keppninni. Einu skilyrðin fyrir þátttöku er að fara að þeim reglum sem settar eru um skil og að myndin sé tekin á árinu 2011 og í þeim mánuði sem myndin á við.
    Dæmi: Mynd sem keppir um verðlaun janúarmánaðar skal tekin í janúar 2011, mynd sem keppnir um verðlaun febrúarmánaðar skal tekin í febrúar 2011 og þar fram eftir götunum. Allir sem hafa áhuga á að taka þátt í keppnini hvattir til að kynna sér vel reglur keppninar.
  8. Fólk eða mannvirki mega ekki sjást í myndinni og dýr mega ekki vera í forgrunni. Með mannvirki er átt við virkjanir, hús, raflínur, brýr og þess háttar. Þegar sagt er að dýr megi ekki vera í forgrunni, er átt við að dýr megi ekki vera aðalatriði myndarinnar.

Eitthvað hefur borið á því að fólk  hafi áhyggjur af því að ekki megi vinna myndir í myndvinnsluforritum áður en henni er skilað inn. Það er að vissu leiti rétt og er það orðað svo í keppnisreglunum:

Ekki má vinna mynd að öðru leyti en því að stilla af og lagfæra tæknilega galla í framköllun (t.d. í Adobe Lightroom, Apple Aperture eða Adobe Photoshop/Elements).

Hér er átt við að keppanda ER HEIMILT að framkalla mynd sína í þessum forritum til dæmis: stilla exposure, contrast, saturations, sharpness og shadows svo eitthvað sé nefnt. Dæmi um það sem ekki er heimilt og flokkast ekki undir framköllun er HDR vinnsla, litum skipt út, mannvirki og annað maskað út og þar fram eftir götunum.

Flestum ætti að vera ljóst hvað er eðlilegt í þessum efnum, þar sem þetta er ljósmyndakeppni en EKKI myndvinnslukeppni.

Eimskipafélagið vonast til þess að flestir geti notið þess að taka þátt í þessari skemmtilegu keppni og vill á sama tíma benda á að keppnin er fyrst og fremst til skemmtunar og gleði fyrir þátttakendur. Vonast félagið einning til þess að sjá sem flesta á glæsilegri yfirlitsýningu keppninar sem vonandi verður haldin snemma árs 2012.

 

 

  • Keppnisreglur (smellið hér)+




Find