Flugfrakt

Til að fá frekari upplýsingar eða verðtilboð, vinsamlegast hafið samband við Viðskiptaþjónustu Eimskips í síma 525 7800, eða sendið póst á flugfrakt@eimskip.is. Hægt er að hlaða niður flugþjónustubæklingi Eimskips með því að smella hér.

Sú þjónusta sem Eimskip býður inn- og útflytjendum í
flugflutningum er meðal annars:

  • Vara sótt frá verksmiðju eða vöruskemmu
  • Sending merkt og undirbúin til flutnings
  • Hagstæð flutningsgjöld boðin
  • Útflutningsskjöl, tollskjöl og farmbréf gefin út
  • Vörunni komið til flutningsaðila
  • Farmtryggingar í boði
  • Vara tollafgreidd á áfangastað
  • Vöru ekið heim á hlað móttakanda

Aðal-samstarfsaðili Eimskips í flugfrakt er Þýsk/Austurríska flutningafyrirtækið Schenker, sem stofnað var árið 1872. Flutninganet Schenker er víðfemt, þar sem starfsmenn fyrirtækisins eru um 55 þúsund talsins og starfa á 1.500 starfsstöðvum í 150 löndum.

Í Bandaríkjunum hefur Schenker verið þekkt undir vörumerkinu BAX Global, en Schenker yfirtók það vörumerki árið 2006.