Samþykkja þarf búslóðarflutningsskilmála Eimskips áður en sótt er eftir tilboði í búslóðarflutning
- Almennir flutningsskilmálar gilda um flutninga á búslóðum og búslóðabílum. Lesa má flutningsskilmála á heimasíðu Eimskips hér
- Greiða þarf fyrir flutning á búslóð og bíl áður en skip leggur úr höfn frá brottfararlandi. Ef ekki hefur verið gengið frá greiðslu er búslóð ekki hlaðið í skip.
- Skila þarf af sér búslóðinni fyrir tilsettan lokatíma í hverju landi sem fram kemur á heimasíðu Eimskips og í upplýsingum um flutning til og frá Íslandi. Ef búslóð er skilað of seint fer hún í næsta mögulega skip svo framarlega sem greiðsla hafi borist fyrir flutningskostnaði og allir viðeigandi pappírar fylgi henni.
- Ef um heilgáma er að ræða í útflutningi frá Íslandi þá þarf að innsiglisvotta þá hjá viðurkenndum aðilum. Ekki er tekið á móti ósinnsigluðum gámum inn á athafnasvæði Eimskips í Reykjavík.
- Allar búslóðir sem fluttar eru með Eimskip þurfa að vera tryggðar. Tryggingariðgjald er greitt samhliða flutningsgjöldum. Tryggingagjald reiknast sem 1% af verðmæti búslóðar og flutningsgjaldi. En þó lágmark 5.000 ISK. Eigin áhætta í hverju einstöku tjóni er ISK10.000.
- Ekki er tekið á móti ópakkaðri búslóð.Ef búslóð uppfyllir ekki kröfur um pökkun sem hentar sjóflutningi getur það orsakað að farmflytjandi neiti flutningi vegna hættu á skemmdum og samfara því getur aksturskostnaður hækkað. Burður á búslóð er aldrei innifalinn í verðum og er hvergi gert ráð fyrir að bílstjóri beri hluti út í bíla, hvorki á Íslandi né erlendis.
- Allar tímasetningar á akstri eru áætlaðar og geta breyst. Búslóðareigandi er ábyrgur fyrir því að flutningabíll komist að dyrum á ákvörðunarstað. Meti bílastjóri aðstæður þannig að hætta sé á skemmdum á tækjabúnaði vegna erfiðra aðstæðna eða ólöglegt er að leggja eða fara með bíl eða gám á ákvörðunarstað hefur það aukinn kostnað í för með sér fyrir búslóðareiganda.
- Losunar- og hleðslutímar í og úr bílum er mismundandi eftir löndum en er vanalega á bilinu 1-2 klst. Ef losun eða hleðsla tekur lengri tíma en innifalinn er í aksrinum reiknast biðtími á bíl sem rukkað er sérstaklega fyrir. Vinsamlegast athugið að yfirleitt er ekki lyfta á bílum sem eru í akstri erlendis.
- Erfitt er að tímasetja akstur nákvæmlega og allar gefnar tímasetningar eru áætlaðar.
- Gámaleiga reiknast 8 dögum eftir að búslóðin kemur til viðkomandi lands. Geymslugjald reiknast á 4 degi frá komu.
- Tollameðferð er mismunandi eftir löndum og getur tekið tíma, tollun er á ábyrgð búslóðareiganda.
- Það er á ábyrgð farmeiganda að fylgjast með komu skipa í viðkomuhöfn og setja sig í samband við skrifstofur okkar til að taka lokaskrefin í flutningsferlinu.
- Aldrei skal flytja búslóð í bifreið, ef það er gert þá er hvorki búslóðin né bíllinn tryggður.
Mikilvægt er að lesa leiðbeiningar á www.eimskip.is vel yfir og gefa sér góðan tíma í að skipuleggja búslóðaflutning.
Hefur þú lesið og kynnt þér ofangreind atriði vegna flutninga búslóða og bifreiða og samþykkir þau?
|