Tollskjalagerð

Eimskip býður upp á tollafgreiðslu í inn- og útflutningi, vel þjálfað starfsfólk Eimskips getur sparað þér tíma og fyrirhöfn við toll- og flutningsskjalagerð.

Sérfræðiþekking starfsmanna Eimskips við tollflokkun og í reglugerðum kemur að góðum notum, auk þess sem við sjáum um öll samskipti við embætti Ríkistollstjóra. Eimskip getur sparað viðskiptavinum sporin og auðveldað flutningsferlið til muna.

Eimskip afgreiðir einfaldari tollskýrslur innan sólarhrings, en ef þörf er á hraðari afgreiðslu er boðið upp á flýtiafgreiðslu og er þá skýrslan afgreidd innan 2 klst.  Fyrir þá þjónustu er greitt flýtiafgreiðslugjald. 

Eimskip er með ferðir í Tollinn tvisvar sinnum á dag, gegn vægri greiðslu, með alla pappíra sem þangað þarf að afhenda.

Boðið er upp á :
  • Tollskýrslugerð 
  • Umsjón með ATA Carnet 
  • Bráðabirgatollafgreiðslu 
  • Verðútreikninga 
  • Umsókn um bankaábyrgð (Letter of Credit) 
  • Útgáfu vottorða
  • Beiðni um skoðun vegna endursendinga

Skoða bækling um þjónustuframboð Eimskips

Nánari upplýsingar
Viðskiptaþjónusta Eimskips er ávallt reiðubúin að veita upplýsingar og aðstoða.  Hafðu samband með því að hringja í síma 525 7800 eða senda tölvupóst á ccs@eimskip.is.

Frágangur gagna

Viðskiptavinur ræður því hvort hann tollflokkar reikninginn. Ef gögnum er skilað inn tollflokkuðum þarf aðeins að greiða grunngjald fyrir tollskýrslu en auk þess er greitt fyrir hverja línu, ein lína er innifalin í hverri tollskýrslu.

Ef  gögnum er skilað inn ótollflokkuðum og mikil aukavinna fylgir við gerð skýrslunnar bætist við tímagjald fyrir hverja klukkustund sem unnið er við skýrsluna samkvæmt gjaldskrá.

Rafræn tollafgreiðsla

Tollskýrslur eru sendar á rafrænu EDI-formi til Tollsins nema í undantekningartilfellum sem eru: 

  • Tollafgreiðsla notaðra bíla
  • Afgreiðsla 2 - leiðrétting á tollskýrslu eftir að tollafgreiðsla sendingar hefur farið fram
  • Bráðabirgðatollafgreiðsla og uppgjör á bráðabirgðaafgreiðslu
  • Undanþágur frá greiðslu aðflutningsgjalda í sumum tilvikum og ýmsar sérafgreiðslur

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum sendið fyrirspurn á netfangið: ccs@eimskip.is eða hringið í síma 525-7800. 


Allar frekari upplýsingar um tollamál og reglur er að finna á www.tollur.is