Styrkir
Eimskipafélag Íslands styrkir margvísleg málefni.
Allar styrkbeiðnir verða að berast Eimskip á netfangið styrkir@eimskip.is
Styrkveitingar fyrir árið 2010 hafa verið afgreiddar.
Eftirfarandi verður að koma fram á umsóknarbeiðninni:
- Hver sækir um: Einstaklingur - félag - samtök
- Tengiliður: Nafn, símanúmer/GSM og netfang
- Hvers vegna er sótt um: Samandreginn texti um helstu atriði umsóknar
- Upphæð sem sótt er um
- Tímarammi - dagsetning
Einnig má senda með viðhengi með ítarlegri texta og öðru ítarefni þar sem við á.
Ábyrgð með styrkveitingum er í höndum kynningar- og markaðsdeildar.
Fjallað er um allar styrkbeiðnir sem berast og öllum beiðnum er svarað. Allar styrkbeiðnir fara fyrir styrkjafund og einsetur Eimskip sér að svara þeim innan 2 vikna.