Skil á tómum gámum

• Er viðskiptamaður skilar gámi til Eimskips skal hann vera tómur og hreinn. Að öðrum kosti verður gámur hreinsaður á kostnað viðskiptamanns.

• Er gámur er sóttur til viðskiptamanns verður hann skoðaður af bílstjóra Eimskips. Ef gámur er ekki tómur verður hann ekki tekinn og aukaaksturskostnaður leggst á viðskiptamann.

• Open top  gámum á að skila með seglum og stöngum uppsettum til Eimskips. Segl skal vera heilt. Allur kostnaður vegna segls og stanga leggst á viðskiptamann.

• Frystigámar: rafmagnskapall skal vera uppgerður í geymsluskúffum á frystivél.

• Keðjum og spansettum sem flutt er með vöru í eða á gámaeiningum skal skila. Að öðrum kosti verður viðskiptamaður fyrir kostnaði.

• Ef tjón verður á gámum Eimskips í vörslu viðskiptamanns, og/eða búnaði tengdum þeim, ber að tilkynna slíkt til flutningastýringar Eimskips í síma 525-7400 eða með tölvupósti á containers@eimskip.is

Smellið hér til að senda tölvupóst þar sem óskað er eftir að gámur sé sóttur.