ePort skilmálar
ePort nefnist nýr þjónustuvefur á netinu fyrir viðskiptavini Eimskips sem er opinn 24 tíma á dag, alla daga ársins. ePort leysir af eldri þjónustuvef sem við höfum kallað Easy. Þarna geta viðskiptavinir nálgast ýmsar gagnlegar upplýsingar um sendingar sínar og beðið um þjónustubeiðnir þeim tengdar.
Nýi þjónustuvefurinn keyrir á lausn frá Microsoft sem kallast Silverlight. Ef Silverlight er ekki nú þegar uppsett í tölvunni þá kemur upp gluggi við innskráningu og biður um að forritið sé sótt. Athugið að til að breytingin sé virk þarf að loka vafranum að uppsetningu lokinni og ræsa að nýju.
Á þjónustuvefnum ePort er m.a. hægt að:
- Skoða stöðu sendinga, bókana, reikninga og akstursbeiðna
- Bóka flutningsfyrirmæli
- Skoða farmbréf og tilkynningar
- Leggja fram þjónustubeiðnir
- Fylgjast með stöðu þjónustubeiðna
- Skoða reikningsstöðu
Til að öðlast aðgang og fá lykilorð þarf að ganga frá samningi við Eimskip um notkun þjónustuvefsins.
Hafir þú þegar fengið aðgang skráir þú þig inn hér: Innskráning í ePort er hér
Nánari upplýsingar um aðgang og notkun þjónustuvefsins veita ráðgjafar í þjónustuverum Eimskips í inn-og útflutningi í síma 525 7000 eða með því að senda tölvupóst á service@eimskip.is (innflutningur) eða export@eimskip.is.