Um síðast liðin áramót tóku gildi ný ákvæði í IMDG reglum sem gilda um flutninga á hættulegum varningi í sjóflutningi.
IMDG er alþjóðleg samþykkt, undir stjórn Alþjóða siglingastofnunarinnar (IMO), um flutninga á hættulegum varningi í sjóflutningi. Samþykktinni er ætlað að tryggja aukið öryggi í sjóflutningum og á hafnarsvæðum.
Umræddar reglur um ökutæki gilda ekki vegna flutninga á landi, þ.e. skv. svo nefndum ADR reglum, einungis í sjóflutingum.
Umrædd breyting felur það í sér að ökutæki hverskonar flokkast nú sem hættulegur varningur í sjóflutningum, ólíkt því sem hefur verið hingað til. Ökutæki hafa fengið UN númerið 3166 undir IMDG reglum.
Almennt um flutninga á hættulegum varningi er það á ábyrgð sendanda vöru að yfirlýsing um flutning á hættulegum varningi (Dangerous Goods Declaration) fylgi vörunni frá upprunastað til afhendingarstaðar. Framangreind yfirlýsing þarf einungis að vera til staðar fyrir ökutæki frá lestunarhöfn til losunarhafnar.
Til að auðvelda viðskiptavinum flutning á ökutækjum og tryggja skráningu þeirra skv. IMDG reglum, mun Eimskip annast skráningu á yfirlýsingu um flutning á hættulegum varningi (Dangerous Goods Declaration) fyrir ökutæki á öllum starfsstöðvum félagsins þ.e. skráningu á yfirlýsingunni fyrir hönd viðskiptavinar hverju sinni. Gjald verður innheimt fyrir skráninguna skv. gjaldskrá Eimskips.