Svavar Jónatansson ljósmyndari hefur á undanförnum árum myndað Ísland út um hliðarrúður flutningabifreiða Flytjanda og annarra, og orðið mörgum flutningbílstjórum að góðu kunnugur. Úr þeim 200.000 myndum sem hann tók valdi Svavar 40.000 í myndböndin Innland og Útland, en þau sýna samfellda keyrslu eftir þjóðveginum.
Þetta efni er nú komið út á mynddiski ásamt aukaefni, eins og fjallað var um í Fréttablaðinu 15 júlí síðastliðinn. Einnig er hægt að fræðast meira um verkefnið á heimasíðu Svavars, sem sjá má með því að smella hér.
Svavar þakkar Flytjanda fyrir stuðning við framkvæmd verksins og sérstaklega þeim bílstjórum sem óku með hann um landið.