Tollafgreiðsla notaðra bíla

Til að geta tollafgreitt notaða bíla þarf eftirfarandi pappíra/upplýsingar:


1.  Þegar bíll er kominn til landsins þarf að sækja pappíra í afgreiðslu Eimskip í Vöruhótelinu á 1. hæð.   Þeir pappírar sem koma til landsins með bílnum eru yfirleitt farmtrygging, reikningur og frumrit af erlendu skráningaskírteini.

2.  Afhenda þarf pappíra til tollskjaladeildar á annarri hæð í Vöruhótelinu og leggja inn afrit af pappírum til tollskýrslugerðar.  Hér er farið yfir innflutningsferlið og fyllt út beiðni um tollskýrslugerð

Mikilvægt er að allar upplýsingar um erlendan kostnað vegna forflutnings erlendis komi fram.  Einnig þarf að taka fram hvort einhverjir hlutir (t.d. dekk) fylgi bílnum.

3.  Fara í Umferðastofu, Borgartúni 30 og fá fastanúmer (bílnúmer)

  • Leggja þarf inn frumrit af erlendu skráiningskírteini (Orginal Title) og farmbréfi frá Eimskip
  • Eimskip bíður upp á þá þjónustu að sækja um fastanúmer og er greitt sérstaklega fyrir það
  • Hægt er að fá leigð rauð númer hjá skoðunarstöðvum svo ekki þurfi að keyra bifreið án númers

4.  Hringja fastanúmer inn í tollskjaladeild (525-7510) eða senda á tölvupósti til ccs@eimskip.is

5.  Tollskýrsla verður lögð inn til tolls og tekur afgreiðsla þar um 7 virka daga.  Athygli er vakin á því að það er alfarið í höndum Tollstjóraembættisins hversu langan tíma ferlið tekur. Allar bílaskýrslur fyrir notaða bíla eru á pappír. Fulltrúi tollskjaldeildar mun hringja í móttakanda þegar tollaheimild er komin.

6.  Þegar tollheimild er komin þarf að greiða öll aðflutningsgjöld nema vörugjöld.  Gjöld þessi koma til greiðslu hjá Tollstjórann í Reykjavík við Tryggvagötu.

7.  Greiða flutningsgjöld í afgreiðslu Eimskips í Vöruhóteli og sækja bíl á bílavöll.  Framvísa þarf staðfestingu tolls.

8.  Farið er með bíl á þá skoðunarstöð sem bílnúmer farartækis er sent til.  Hér eru vörugjöld greidd.