Kæli- og frystiflutningar
Eimskip býður flutninga á kældum og frystum sjávarafurðum meðal annars milli Noregs, Íslands, Spánar, Portúgals, Bretlands og meginlands Evrópu. Skipin lesta aðallega frystivöru í Norður-Noregi til Íslands, þar sem hluta vörunnar er umskipað í gáma til flutnings til Kanada og Bandaríkjanna og hluti vörunnar fer til kaupenda á Íslandi. Eftir losun á Íslandi lesta skipin vöru til Spánar og Portúgal, aðallega saltfisk sem losaður er í Vigo á Spáni og dreift þaðan um Íberíuskagann.
Öðrum markaðssvæðum er sinnt með skipum af ýmsum stærðum eftir þörfum hverju sinni, s.s. rækjuflutningum frá Nýfundnalandi til Íslands og Noregs, flutningum á vertíðarvöru frá Íslandi til Eystrasaltsríkja og annarra staða í Evrópu. Þá er í boði flutningaþjónusta til og frá Murmansk.
- Áreiðanleg alhliða flutningaþjónusta á Norður-Atlantshafinu
- Sérhæfing í flutningum á hitastýrðum vörum á brettum
- Mikil reynsla í kæli- og frystiflutningum
Viðskiptaþjónusta Eimskips er ávallt reiðubúin að veita upplýsingar og aðstoða. Hafðu samband með því að hringja í síma 525 7800