Bílainnflutningur
Viðskiptaþjónusta Eimskips er ávallt reiðubúin að veita upplýsingar og aðstoða. Hafðu samband með því að hringja í síma 525 7800
Þjónustuferli:
Viðskiptaþjónusta Eimskips er ávallt reiðubúin að veita upplýsingar og aðstoða. Hafðu samband með því að hringja í síma 525-7800
1. Fyrstu skrefin
- Ef innflytjandi eða seljandi sér sjálfur um að koma ökutæki til hafnar í Bandaríkjunum, er fyrsta skrefið í innflutningi að hafa samband við skrifstofu Eimskips í Bandaríkjunum.
- Ef um forflutning er að ræða, er nauðsynlegt að hafa samband við skrifstofu Eimskips á Íslandi, cci@eimskip.is eða í síma 525-7800.Viðskiptavinir eru beðnir að hafa í huga í þessu sambandi að flutningur innan Bandaríkjanna getur tekið mislangan tíma vegna fjarlægða.
- Þegar viðskiptavinur hefur bókað flutninginn fær hann bókunarnúmer, sem nauðsynlegt er að framvísa þegar ökutæki er afhent til flutnings.
2. Flutningur
- Til að hægt sé að flytja bifreið frá brottfararstað þarf að afhenda viðkomandi skrifstofu Eimskips skráningarskírteini (e. title) og reikning (e. invoice) vegna kaupa á bifreiðinni. Ekki er hægt að senda bíl ef þessa pappíra vantar.
- Mælt er með því að skráningarskírteinið og reikningurinn sé sendur til erlendu skrifstofunnar í sér pósti (til dæmis með UPS eða DHL).
- Tollafgreiðsla í erlendu höfninni getur tekið allt að 5 virka daga eftir að öll gögn hafa verið lögð fram.
- Eldsneytistankur bifreiðarinnar má ekki innihalda meira en 1/8 hluta hans í sjóflutningi.
3. Koma til Íslands
- Viðtakandi fær senda tilkynningu þegar bíllinn kemur til landsins, og þá er hægt er að sækja skráningarskírteinið og reikninginn í afgreiðslu Eimskips.
- Frumrit skráningarskírteinis og farmbréf (sem hægt er að fá í afgreiðslu Eimskips daginn sem flutningsfar kemur til landsins) þarf að fara með í Umferðarstofu í Borgartúni.
4. Lokaskrefin
- Tollskjalagerð Eimskips getur séð um tollafgreiðslu á ökutækinu.Þá þarf að framvísa afrit af skráningarskírteini og reikningi í afgreiðslu deildarinnar á annarri hæð Vöruhótelsins.Tollskjalagerðin er í síma 525-7510 eða tölvupósti ccs@eimskip.is
- Þegar tollayfirvöld hafa afgreitt bifreiðina, sem tekur jafnan nokkra daga, lætur tollskjaladeildin innflytjanda vita.Þá þarf innflytjandi að greiða af henni gjöld hjá Tollstjóraembættinu í Tryggvagötu 19 (ef sendingin er umskráð út á land, þá afgreiðast sendingarnar þar), og fá afgreiðsluseðil þaðan.
- Innflytjandi kemur með seðilinn frá Tollstjóraembættinu í afgreiðslu Eimskips og greiðir af bifreiðinni fraktgjöldin